|
|
14.10.2007 11:45:34 / kata
Þessi dagur verður búinn áður en maður veit af svo það er eins gott að nýta hann alveg út í ystu æsar. Ég ætla að lesa og skila verkefnum í dag eins og aðra frídaga frá vinnunni. Hef ekki bloggað lengi lengi ,greinilega eitthvað annað að gera í lífinu en blogga hér. En hvað um það, það er ýmislegt í gangi sem er spennandi þessa dagana sem ég fer nú ekki að tala um hérna enda persónulegra en svo. Gera fólk bara forvitið  Ég verð heima í allavega 6 vikur vegna aðgerðar á fæti svo ég mun nýta þann tíma og læra eins og ég eigi lífið að leysa. Lesa vel fyrir prófin sem verða í desember. Annars er lífið bara ljúft, við Eva höfum það ágætt og fílum Fjörðinn vel  Ætla að snúa mér að lestrinum núna, blogga kannski eitthvað einhverntíman í framtíðinni. Gleymi alltaf að ég sé með svona bloggsíðu.
»
19.08.2007 14:01:08 / kata
Það er misjafnt hvernig það endar þegar maður er steggjaður... heyrði fyndinn endi ef fyndinn skyldi kalla en það verður það örugglega þegar fram í sækir. Þannig er að efitr að hafa farið um víðan völl og búinn að húkka far með gamlingjum sem hann nánast drullaði yfir, þá hentu þeir honum út úr bílnum heheh hann var myndarlegur með tígó um allan haus, málaður fagurlega með rauðum varalit og í gegnsæjum kjól með áteiknaðan brjóstahaldara. þá hélt hann á vit ævintýranna með félögum sínum. dansað og djammað um allt en endirinn var þó sætastur NOT. Fangelsi.............. og ekki fékk mamma að leysa hann út þar sem hann var svo "trekktur" að sögn yfirvalda. Mamma kom svo seint og síðar meir að sækja piltinn og hef ég ekki heyrt meir.... Finnst ykkur ekki að það mætti steggja einhverja ærlega á löggustöðinni ??
»
11.07.2007 15:55:57 / kata
Ég var búin að pikka inn og það hvarf !!!
Ég sem er með gúbífiskaminni hmm jæja, var
aðsegja eitthvað um að ég væri ein í hreiðrinu á næstunni þar sem
elsku dóttirin er flogin til útlandanna með liðinu sínu, USA er
ma´lið og þarætla þær að keppa á móti, Schwan´s USA cup, allar
upplýsingar er hægt aðfinna á síðunni;
http://www.blog.central.is/haukar-
þetta verður örugglega major gaman hjá þeim 
Ég aftur á móti fer að byrja að vinna aftur eftir sumarfrí á
næstunni og þá hef ég eitthvað annað að hugsa um í stað þess að
sakna hennar of mikið.
Ég er búin að klífa Esjuna ganga Leggjabrjót og fara upp á
Heklu, ég er svoooo dugleg, heheh
Styttist í haustið og skólana og allt það Hlakka til að fara
að læra aftur og meira, það er alveg nauðsynlegt að lesa smá og
skrifa glósur og svona og svona og svona...
Farin að bóna bílinn
minn................................
»
04.06.2007 17:08:55 / kata
Hundar eru með rúsínugat.. hmm ég vissi það ekki ?en samt maður
segir alltaf "þetta er algjört rassgat" eða " oh þvílík
rúsína" heheh..
Hún dóttir mín var að segja þetta við mig, enda ég ekki sú
manneskja sem færi að láta mér detta í hug svona lagað nokkuð.
Ég er dottin í FRÍ !!!! ohh þvílík sæla...
loksins eftir langan vetur er komið að því að vera svona laus og
frjáls með tíma sinn, svona að mestu leyti altént.
Kanada á von á mér já bara alveg að koma að því að ferðast
með yfir fimmtíu konum til útlanda.
ÉG á systur eina sem er komin með sjúkraliðapróf ég er stolt
af henni !!
Svo er önnur í háskóla og ég ætla sko að fara þá leið líka,
þegar stúdentsprófið er komið í höfn, fer í fjarnám næsta haust og
klára þetta, ekki spurning, tókst ekki að klára á tilsettum
upphafstíma en það verður gert með pompi og prakt að ári liðnu, þá
verð ég stúdent 
Vertu til er vorið kallar á þig vertu
til að leggja hönd á plóg
komdu út því að sólskinið vill sjá þig,
sveifla haka og rækta nýjan skóg HEY
sveifla haka og rækta nýjan skóg
Það er spursmál hvort þetta sé óskhyggja ????
»
17.05.2007 11:18:53 / kata
Kosningar
afstaðnar og allir kátir með það, nei alls ekki... það átti
ekki að fara svona ! Góðir Íslendingar
sumir hverjir, fóru ekki á kjörstað til að nýta lýðræðislegt
atkvæði sitt og er það miður.
Stjórnin heldur kannski
velli en þó löskuð ef hún ætlar að standa. Minn flokkur vann
sigur ! bætti við sig meira en nokkur annar flokkur, fleira fólk
á þing, meira vægi.
Burt séð frá kosningum þá er
spurning hvort sumarið sé að koma ? Ég var á norðurlandinu og þar
var nokkuð kalt en þó í lagi, ég hef aldrei látið veðrið fara í
taugarnar á mér. Fer nú ekki að byrja á því á gamals aldri.
Ég sá alveg stórundarlegt uppátæki í blaði um daginn, þannig er að
í Japan er kominn póstkassi fyrir nýbura !! já pósturinn er kominn
darling... það er strákur núna !!!
jeyjjj... það er ekki öll vitleysan
eins.
»
09.05.2007 21:21:48 / kata
Það sem ég lá i
makindum og lét gervisól skína á mig þá hlustaði ég á
stjórnmálamenn talast við í útvarpi. Talast við er
kannski ekki rétta orðið þar sem oft á tíðum þetta fólk tekur
bara fram í fyrir hvort öðru, en það er bara eitthvað sem
allir eru vanir, ég allavega man ekki eftir öðru
stjórnmálamönnum karpa.
Kosningarnar eru að
nálgast og það skiptir máli hvað maður kýs, ekki halda annað.
Áframhaldandi ástand er ekki það sem við viljum þar sem það er stíf
stefna beint i kreppu, já að lokum verður kreppa, það er alltént
eðlilegt að hún fylgi þenslunni. Það má kannski koma í veg
fyrir hana með því að hafa almennilega stjórn á málunum, öllum
málunum. Það þarf varla að taka það fram að peningastefnan er
ekki sú stefna sem allir geta fylgt,sú stefna er fyrir þá sem eiga
peningana og geta eytt eða sparað að vild. Fjármagnstekjur
eru til dæmis eitt af því sem auðmenn á allskyns stigum geta
skaffað sér og greiða aðeins brot í skatt miðað við venjulegan Jón
á landinu okkar ylhýra.
Það er ekkert
sjálfsagt í þessu öllu og það tekur tíma að laga hluti sem
aflagast, en það má laga og ég skora á fólk að kjósa þá sem vilja
breyta, öllum til handa, en ekki bara þeim sem eiga sjóði feita og
halda áfram að fita þá sjóði.
Jæja þá er komið að
því sem er skemmtilegra, ég ætla að taka mér vetrarfrí á
næstunni og fara í svetina Ég á von á því að það verði afar gott
og aflappandi að fara og hitta ???? já það er ekki gefið upp
hér..... Mitt að vita og þitt að komast að 
FRAMTÍÐIN ÞÍN
ER Í KJÖRKLEFANUM !
..................KJÓSTU
RÉTT....................
já og góða skemmtun
á laugardag allir 
»
02.05.2007 09:46:23 / kata
Jæja er þá ekki komið að því að ég bloggi aðeins hérna
!!
Kosningar - já - ekki kjósa rangt !!
Eins og allir vita er ég vinstri græn, já og það er ég bara
ánægð með, enda er það líka öfgarnar sem ég hrífst oft af í
lífinu.
Það er spurning hvort ekki þurfi að senda mig í framboð og láta
mig taka til óspilltra málanna við að hreinsa til í þjóðfélaginu !!
Stór orð og eru þó svo smá. Ég á við að það vantar einhvern
þarna úti sem er ekki tengdur allt og öllum svo að ekki er hægt að
gera neitt af hræðslu við að misbjóða enhverjum. Flækja af
orðum hjá mér en samt ...
Það þarf fyrir það fyrsta að horfa á hvað þetta er allt saman,
er þetta ekki pakki - þjóðfélagið ? Ó jú.. við erum nefnilega
pakki, stór pakki og allir verða að leggja sitt af mörkum í þennan
pakka, allavega eins og þeir geta, en ekki eins og þeir
vilja. Það er nefnilega viljinn sem þarf og allt sem þarf í
rauninni. Ég eða þú viljum ekkert endilega greiða í stóra
sjóðinn, en ... við verðum, svo það er ekki spurning um vilja það
er bara einfaldlega skylda okkar, its as simple as that
Skattamálin okkar á þessu ylhýra landi eru nefnilega í
ólestri, já við þurfum öll að borga skatt en ekki svíkjast undan
með það, enda erum við öll að fá þjónustu frá ríki og bæ sem er
bara sanngjarnt að við borgum öll í !!! svo er það líka
lánastofnanir sem eru alveg að gera útafvið okkur, hvernig má það
vera að við erum að borga lánin okkar margfalt til baka þegr upp er
staðið ??
Margt sem þarf að laga já En muna að kjósa
rétt elskurnar mínar þið þessar fáu sem lesið þetta spark hjá
mér
»
02.03.2007 08:45:11 / kata
Ekki er það að skila sér til
mín eða þín að lækkun hefur átt sér stað á
matvælum,
(varð einhver lækkun að ráði??)
Ég bara spyr ??
Furðuleg vinnubrögð hjá voru
háa Alþingi........... 
Ekki
að undra kannski ef skoðað er hverjir eru við völdin, ha
.?
Eitt fyndið finnst mér hafa
komið fyrir hjá þeim í tíu ellefu búðunum, já fyndið eiginlega
vegna þess að þar er vara sem er ávaxtasafi í glerflöskum, hann
kostaði 299 krónur, hækkaði svo í 349 krónur,fyrir nokkru síðan og
viti menn hann lækkaði aftur niður 1. mars í 300 krónur. Það er
ekki allt Mér var tjáð að hann ÁTTI AÐ VERA Á TILBOÐI á 299
krónurnar,en það gleymdist að setja TILBOÐSMIÐA !!!
HALLÓÓÓÓÓ.................. Við erum ekki heimsk ....ef það
er tilboð þá fer það ekki á milli mála, hvað eru margar verslanir
hjá 10 11 ? og það gleymdist að merkja i öllum búðum !!!!! BULLSHIT
..... og ekkert annað. Hvað ætli margir nýti sér svona "tilbúna"
gleymsku þegar vöruverð er annars vegar ??? Spurning.. en ég
allavega er ekki alveg að kaupa þetta verðlækkunarrugl ! hjá
ríkisstjórn vorri.
»
13.02.2007 20:25:18 / kata
Það má kallast þjóðlegasti siður ....þetta að kasta atkvæði sínu
niður....... i kjörkassa á kjördeginum.... og svo þegar
atkvæðin eru talin...... kemur í ljós hver verður þá valinn.....
til að stjórna þjóðarbúskapnum..........
En það er samt ekki alveg séð hver mun gera þetta þ.e. að
stjórna þegar upp verður staðið, eftir kosningar. Ég á mér
eindregna ósk og hún er sú að fólk sjái það að ekki borgar sig að
kjósa þá menn sem eru nú við stjórnvölinn, ástæðan ? jú ... þeir
eru bara að hugsa um rassinn á sjálfum sér og ekki mér og þér.....
!!! og ekki láta blekkjast af einhverjum skattalækkunum á mat
sem nátturulega eru bara hlægilegar þar sem ekki var strax gripið
til aðgerða, nei bara að láta líða eins og nokkra mánuði svo að
kaupmenn og heildsalar geti hækkað verðið þar til kemur að
ríkislækkunum !!!
MEIRA NÆST !!!
»
27.01.2007 20:46:18 / kata
Já það er búið að setja lög um ríkisútvarpið okkar, eða þeirra,
spurning hverjum það tilheyrir þetta dót ? Núna verða allir sem eru
eldri en 16 ára að greiða nefskatt í þetta, og þeir sem eru aðeins
og þá meina ég "aðeins" með fjármagnstekjur sleppa við að
greiða!! Er ekki allt í lagi með stjórnmálamenn landsins ? Ég
hef þá óljósu hugmynd að þeir sem tilheyra þessum flokki séu ekki
við fátækramörk í tekjum(fjármagns-)
Gott fólk ég ætla bara rétt að vona að þið hafið þá rænu að kjósa
rétt i næstu kosningum og látið ekki blekkjast af stjórnmálamönnum
sem lofa öllu fögru.
Já ég kýs VG það er ekki spurning, enda er ég svo ferlega mikill
andstæðingur alls sem hægt er að vera í andstöðu við.
Annars er allt fínt að frétta af mér og minni  það er alltaf nóg
að gera og ég tók mér frí í skólanum þessa önnina, ætla að koma mér
saman og verða heil þegar vorið er komið. Það gengur bara vel
eins og mín er von og vísa
Munið bara að vera góð við alla þá á maður sjálfur svo góða daga og
eitt enn.... ég er að hugsa um að sleppa því að senda jólakort
næstu jól og gefa frekar upphæð til styrktar einhverju málefni og
ég skora á aðra að gera slíkt hið sama.
»
29.12.2006 20:28:05 / kata
BROSANDI YFIR ÖLLU ÞVÍ LIÐNA OG HLÆGJANDI VEGNA KOMANDI TÍMA
...HEHEHEH
Allt gott að frétta af þessum vígstöðvum, ég er að fara að
starta nýju ári og það verður örugglega fyrsta besta árið í langri
röð af góðum árum 
Ég tek ekki annað í mál en að svo verði, ég vil líka benda fólki
á það að það styttist í kosningar og bið ykkur um að skoða það vel
hvað þið kjósið vegna þess að það skiptir máli, ! hafið þið heyrt
það áður hmm .. ok .. ég skal þá láta það í fríði um stund, en bara
um stund sko !
Ég mun svo koma aftur og blaðra um
stjórnmálin....
»
25.11.2006 09:05:36 / kata
í
jólin og allt það dótarí. Á þessu heimili verður tekið
til hendinni og málningu slett á veggi og litlar ljósaperur
fá að liggja við rúður.
Jólatré ??? Hvar verður það ? Get ég ekki bara farið og dansað í
kringum annarra manna jólatré, humm Gjafatími framundan og
allir fá eitthvað fallegt eða allavega á það að vera fallegt í
augum þiggjandans, muna bara að hafa það eitthvað sem ég vildi
sjálf gjarnan eiga, þá er maður seif. 
Hver á ekki ættingja í Kanada ?
»
24.11.2006 00:21:37 / kata
Já finnst ykkur hann ekki kaldur þessa dagana ?
 Mikið getum við verið fegin að búa í húsum, með hitaveitu og
öllu heila gumsinu !!
Einhverntíman hefur maður nú logið því að útlendingum að . við
byggjum í snjóhúsum með lyftu, jú vegna þess að þau væru 3 hæða
húsin !!
kalt kalt kalt
Jæja ætla að henda mér í bólið, orðin syfjuð, áti skemmtilega
kvöldssstund með sýstur minni stóru
»
07.11.2006 12:50:28 / kata
Ég er svo hrifin af kuldanum, nei ég vil fara til útlanda í sólina
Ég veit ekki alveg hvað er í gangi þessa dagana, ég er svo
óskipulögð að það hálfa væri nóg.
Don´t give up you still have friends, kannist þið við það lag eða
textann ? Mér finnst hann afar góður, sungið af Peter
Gabriel.
Rest your head
you worry too much
its gonna be alright
Ég þarf að ná mér í þennan texta, vil hafa hann við höndina.
Hann hughreystir mig og aðra.
»
06.11.2006 09:49:36 / kata
Já það er komið ár frá því að líf mitt tók stakkaskiptum, til þess
að gera. Það er komið að vetri sem verður vonandi góður og
gefandi á allan hátt.
Það er alltaf nóg að gera
Fór að sjá "Alveg brilliant skilnaður" um daginn með nokkrum góðum
konum á öllum aldri. Þetta er fínt verk og skemmtilegt, það
snertir strengi hjá manni get ég sagt, Edda Björgvins er alltaf góð
MANY PEOPLE WILL
WALK IN AND OUT OF YOUR LIFE, BUT ONLY TRUE FRIENDS WILL LEAVE
FOOTPRINTS IN YOUR HEART. - E.R.
»
Síður: 1 2 3
|
|